Á aðalfundi Skógræktarfélags Reykjavíkur sem var haldinn í sal Garðyrkjufélagsins, 21. Mars 2018 var talsvert fjallað um Fellsmörk og tilkynnt um það að Skógræktarfélagið hefði keypt jarðirnar.
Fram kom í ræðu Þrastar Ólafssonar formanns stjórnar Skógræktarfélags Reykjavíkur að forsögu málsins megi rekja til ársins 2010 þegar Skógræktarfélag Reykjavíkur sendi Landbúnaðarráðuneytinu bréf með kauptilboði í Fellsmörk. Því var hafnað af tveimur landbúnaðarráðherrum en breytingar urðu á þegar Fjármálaráðuneytið yfirtók jarðareksturinn.
Eftir afar erfiðar samingaviðræður var að lokum gengið frá kaupsamningi sem var undirritaður 20. mars 2018, daginn fyrir aðalfund Skógræktarfélags Reykjavíkur. Stærð jarðarinnar sem var keypt er 982 Ha.
Um framtíð Fellsmerkur kom skýrt fram hjá Þresti að þessi kaup hefðu ekki verið gerð til að hagnast á þeim og það stæði alls ekki til að selja jörðina aftur í litlum pörtum eða stórum. Hann rifjaði upp að á aðalfundi Skógræktarfélagsins 2010 var kynnt sú hugmynd að gera Fellsmörk að einhvers konar þjóðgarði sunnan jökla sbr. Þórsmörk sem er norðan jöklanna. Þá yrði aðgengi almennings tryggt án hindrana.
Því hafði verið fleygt áður að Þröstur ætlaði sér að ganga frá kaupunum á Fellsmörk eða koma henni í einhvern annan farveg í sinni formanstíð og stendur það á endum þar sem í lok ræðu sinna tilkynnti Þröstur að hann ætlaði ekki að gefa kost á sér til áframhaldandi formennsku í félaginu.
Af öðrum breytingum á stjórn Skógræktarfélagsins þá fer Hjalti Elíasson úr stjórninni en hann hefur undanfarin 12 ár verið í stjórninni sem eins konar fulltrúi Fellsmerkur. Hallur Björgvinsson kemur þá nýr inn í stjórnina hjá Skógræktarfélaginu þannig að tenging okkar við stjórn Skógræktarfélagsins er viðhaldið.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Skógræktarfélag Reykjavíkur hefur keypt Fellsmerkurjarðirnar af Íslenska ríkinu
Á aðalfundi Skógræktarfélags Reykjavíkur sem var haldinn í sal Garðyrkjufélagsins, 21. Mars 2018 var talsvert fjallað um Fellsmörk og tilkyn...
-
Á aðalfundi Skógræktarfélags Reykjavíkur sem var haldinn í sal Garðyrkjufélagsins, 21. Mars 2018 var talsvert fjallað um Fellsmörk og tilkyn...
-
Skógræktin skorar á stjórnvöld að stórefla skógrækt í landinu, m.a. vegna bindingar koltvíoxíðs. Sjá frétt á mbl.is .
No comments:
Post a Comment